Grunnnámskeið: Að styðjast við hesta í starfi með fólki
Grunnnámskeið: Að styðjast við hesta í starfi með fólki
Grunnnámskeið: Að styðjast við hesta í starfi með fólki
Grunnnámskeið: Að styðjast við hesta í starfi með fólki
Grunnnámskeið: Að styðjast við hesta í starfi með fólki

Grunnnámskeið: Að styðjast við hesta í starfi með fólki

Verð 105.000 kr

Æfingastöðin stendur fyrir námskeiðinu Að styðjast við hesta í starfi með fólki, dagana 15. og 16. september 2024. Námskeiðið er fyrsta sinnar tegundar hér á landi þar sem farið verður yfir hvernig hægt er að innleiða hesta í fjölbreytt starf með fólki með það að marki að ýta undir heilsu, færni og þátttöku. Námskeiðið er haldið í beinu framhaldi af Ráðstefnu Æfingastöðvarinnar: Dýr í starfi með fólki sem fer fram laugardaginn 14. september. 

Um er að ræða tveggja daga námskeið sem skiptist í fræðilega og verklega hluta Farið verður yfir fræðilegan bakgrunn þess að veita þjónustu með aðstoð hesta. Þá verður unnið að verklegum æfingum með hestum þar sem tekið verður mið af faglegum bakgrunni og þörfum þátttakenda. 

Vinsamlegast athugið að námskeiðið fer fram á ensku. Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiði eru 18 manns. 

 

Fyrir hvern er námskeiðið?  

Námskeiðið er ætlað fjölbreyttum hópi þátttakenda, m.a. þeim sem starfa við veitingu meðferða, þjálfunar eða menntunar einstaklinga með vanda af geðrænum toga. Má nefna geðlækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, hjúkrunarfræðinga eða félagsráðgjafa.

Námskeiðið hentar einnig breiðum hópi fólks með ólíkan faglegan bakgrunn auk þeirra sem starfa innan hestamennsku, ss. bændum eða hestafólki.

 

Kennari:

Norunn Kogstad geðlæknir stofnaði og rekur Lundehagen Gård í Noregi þar sem fram fer fræðsla, meðferðir og rannsóknir á áhrifum hesta í starfi með fólki. 

Norunn hefur sinnt geðlækningum með aðstoð hesta, staðið fyrir og veitt fræðslu fyrir fagfólk um að styðjast við hesta í starfi við bæði á Noregi og víða erlendis. Í doktorsnámi sínu við sálfræðideild Norwegian University of Science and Technology rannsakar hún og teymi hennar áhrif þess að styðjast við hesta í geðlækningum bæði áhrif meðferðarinnar á skjólstæðinga og áhrif á hestinn sjálfan. Norunn er einnig H.E.A.L. leiðbeinandi og með EAGALA réttindi. 

 

Dagsetning og staður 

15.-16. september 2024 

Sunnudagur kl. 10:00-16:00    

Mánudagur kl. 10:00-16:00 

Staður: Faxabraut 2, 815 Þorlákshöfn

 

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar

Námskeiðsgjald er 105.000 kr. Ekki er boðið upp á mat en kaffi og te er innifalið í námskeiðsgjaldi.

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á gunnhildur@slf.is

Æfingastöðin áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.

 

Ráðstefna Æfingastöðvarinnar: Dýr í starfi með fólki fer fram laugardaginn 14. september í Reykjadal í Mosfellsdal. Allar nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Jakobsdóttir yfiriðjuþjálfi Æfingastöðvarinnar í netfang:  gunnhildur@slf.is